Sony Xperia E4g Dual - Forritastjórnun

background image

Forritastjórnun

Þú getur farið á milli forrita með því að nota stýrihnappana, eftirlætisstikuna og gluggann

með nýlega notuðum forritum, þar sem er auðvelt að skipta á milli allra nýlega notaðra

forrita. Sum forrit lokast þegar þú ýtir á til að hætta, en önnur fara í bið eða halda

áfram að keyra í bakgrunninum. Ef forrit er í bið eða keyrir í bakgrunninum getur þú haldið

áfram þar sem frá var horfið næst þegar þú opnar forritið.

1

Gluggi með nýlega notuðum forritum – Opnaðu nýlega notað forrit

2

Eftirlætisstika – Notaðu flýtileið til að komast í forrit eða græjur

3

Verkstýringarhnappur – Opnaðu gluggann með nýlega notuðum forritum og eftirlætisstikuna

4

Heimahnappur – Lokaðu forriti og farðu aftur á heimaskjáinn

5

Til baka stýrihnappurinn – Farðu aftur á fyrri skjá í forrit eða lokaðu forritinu

Opna nýlega notaðan forritsglugga

Ýttu á .

Öllum nýlega notuðum forritum lokað

Pikkaðu á og síðan á

Loka öllu.

Valmynd í forriti opnuð

Þegar þú ert að nota forritið skaltu ýta á .

Ekki er boðið upp á valmynd í öllum forritum.