Sony Xperia E4g Dual - Tækið hlaðið

background image

Tækið hlaðið

Tækið er með innbyggða, endurhlaðanlega rafhlöðu sem aðeins Sony eða heimiluð Sony

viðgerðarstöð ætti að skipta um. Þú ættir aldrei að reyna að opna eða taka tækið í

sundur sjálf(ur). Það getur valdið skemmdum að opna tækið og ógildir ábyrgðina.
Rafhlaðin er hlaðin að hluta þegar tækið fer frá verksmiðju. Hleðslustaða rafhlöðunnar

kann að vera lág, það fer eftir því hve lengi tækið hefur verið í kassa síðan þú keyptir það.

Því er mælt með að þú hlaðir rafhlöðuna í minnst 30 mínútur áður en þú ræsir tækið í

fyrsta sinn. Þú getur notað tækið á meðan á hleðslu stendur. Lestu meira um rafhlöðuna

og hvernig þú getur aukið endingu í

Rafhlöðu- og orkustjórnun

á síðunni 113 .

Tækið hlaðið

10

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.

background image

1

Stingdu hleðslutækinu í rafmagnsinnstungu.

2

Stingdu öðrum enda USB-snúrunnar í samband við hleðslutækið (eða USB-tengið

á tölvunni).

3

Stingdu hinum enda snúrunnar í samband við micro USB-tengið á tækinu og láttu

USB-táknið snúa upp. Tilkynningaljósið logar þegar hleðsla hefst.

4

Þegar tækið er fullhlaðið skaltu taka snúruna úr sambandi við símann með því að

toga hana beint út. Gættu þess að beygla ekki tengið.

Ef rafhlaðan var alveg tæmd gætu liðið nokkrar mínútur áður en kviknar á tilkynningaljósinu og

hleðslutáknið birtist.

Tilkynningarljós fyrir hleðslustöðu rafhlöðu

Grænt

Hleðsluvísir rafhlöðu sýnir meira en 90%

Blikkandi rautt

Rafhlaðan er í hleðslu og rafhlöðuvísirinn sýnir minna en 15%

Appelsínugult

Rafhlaðan er í hleðslu og rafhlöðuvísirinn sýnir minna en 90%

11

Þetta er internetútgáfa þessarar útgáfu. © Prentið aðeins til einkanota.