Sony Xperia E4g Dual - Auðkennisnúmer tækisins fundið

background image

Auðkennisnúmer tækisins fundið

Tækið er með sitt eigið auðkennisnúmer. Númer tækisins nefnist IMEI (International

Mobile Equipment Identity). Þú ættir að geyma afrit af þessu númeri. Þú gætir t.d. þurft

það þegar þú skráir tækið til að nota Xperia™ Care þjónustuna. Ef tækinu er stolið geta

sum símafyrirtæki líka notað IMEI-númerið svo tækið fái ekki aðgang að símkerfinu í

heimalandi þínu.

Í tækjum með tvö SIM kort eru tvö IMEI-númer, eitt fyrir hvora SIM kortarauf.

IMEI-númerið skoðað

Fjarlægðu lokið til að skoða IMEI-númerið.

Opnaðu númeravalið á símanum og sláðu inn

*#06#

.

IMEI-númer tækisins skoðað

1

Á Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

Stillingar > Um símann > Staða.

3

Veldu SIM-kortið og flettu að

IMEI til að skoða IMEI-númerið.