
Aðgengisstillingar
Skoðaðu og breyttu stillingum tækisins úr stillingavalmyndinni. Stillingavalmyndin er
aðgengileg frá bæði forritaskjánum og flýtistillingunum.
Stillingavalmynd tækisins opnuð frá forritaskjánum
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Pikkaðu á
Stillingar.
Upplýsingar um tækið skoðaðar
1
Á Heimaskjár pikkarðu á .
2
Finndu og pikkaðu á
Stillingar > Um símann.
Flýtistillingaskjárinn opnaður
•
Dragðu stöðustikuna niður með tveimur fingrum.
Stillingar valdar til birtingar á flýtistillingaskjánum
1
Dragðu stöðustikuna niður með tveimur fingrum og pikkaðu svo á
Breyta.
2
Á stikunni neðst á skjánum snertir þú og heldur inni tákninu fyrir flýtistillinguna sem
þú vilt bæta við, færir það á efri hluta skjásins og sleppir því þar.
Flýtistillingaskjárinn endurskipulagður
1
Dragðu stöðustikuna niður með tveimur fingrum og pikkaðu svo á
Breyta.
2
Haltu inni tákni og færðu það síðan í viðeigandi stöðu.
3
Pikkaðu á
Lokið.